Færsluflokkur: Bloggar

Til hamingju Karen

Augljólega er farið að molna hressilega undir Frjálslynda flokknum og greinilega engin tilviljun að fólk flýr Magnús Þór Hafsteinsson enn aftur. Karen Jónsdóttir ákvað að yfirgefa flokkinn og ganga til liðs við Sjálfstæðisflokkinn á Akranesi sem nú er með hreinan meirihluta skagafólki til mikilla hagsbóta. Ég skil afstöðu hennar mjög vel og hreint með ólíkindum þessir rasistataktar í Frjálslynda flokknum og skiljanlega vill skynsöm manneskja eins og Karen ekki vera bendluð við slíkan ófögnuð. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Magnús og flokkurinn er borinn sökum um kynþáttafordóma og eðlilega spyr maður sig hvað býr að baki. Er Frjálsyndi flokkurinn að verða einhverskonar þjóðernisflokkur? Von að fólk velti þessu fyrir sér. Það er frábært að Akranesbær vilji taka á móti þessu flóttafólki og reyna að búa þeim betri aðstæður og betra líf  fyrir þau. Ég hef ekki kynnt mér það en trúlega hefur þetta fólk búið við ömurlegar aðstæður í flóttamannabúðum. Í mínum huga er þetta merki um manngæsku og þannig manneskja er Karen greinilega fyrst hún stígur þetta skref.

 


Í lagi að vera fljótur!!!!!

þvílíkur léttir samkvæmt rannsóknum bandarískra vísindamanna þá fær maður mest út úr kynlífinu ef það tekur amk 3 mínútur og helst ekki meira en 13 mínútur fyrir utan forleik. Ég stóð í þeirri trú að ef maður hamaðist endalaust eins og Duracell kanínan þá fengið maður miklu meira út úr sexinu. Grínlaust ég vona að þessir "vísindamenn" hafi ekki fengið mikið borgað fyrir þessa "uppgötvun" og svo á að birta þetta í "Journal of Sexual Medicine". Þeir hljóta að vera komnir í alvarleg þrot með efni ef þetta er það merkilegasta sem hægt er að bjóða uppá í þessu tímariti. Flestir karlmenn með þokkalega kyngetu vita þessa hluti og uppgötvuðu þetta einir og óstuddir. Eins það að sjortari sem tekur 1-2 mínútur er of stutt. Takk fyrir að minna mig á það því ég hefði annars ekki gert mér grein fyrir því eða þannig. Gaman væri að vita hvaða "vísindamenn" þetta eru og hvar þeir gerðu þessa stórmerkilegu uppgötvanir.

   


Trukkaliðið

Enn og aftur eru vörubílstjórarnir að loka götum í mótmælaskyni. Ég styð þennan málsstað heilshugar en menn verða samt að passa sig að fara ekki yfir strikið heldur. Mjög líklega urðu einhverjir flugfarþegar pirraðir í nótt þegar trukkarnir lokuðu Reykjanesbrautinni. Ég hefði orðið það enda þolinmæðisstuðullinn frekar lítill hjá mér. Veit svo sem ekki hvort það urðu einhverjar tafir á flugi við þetta. Ég hef sjálfur enn sem komið er sloppið við að lenda í þessum lokunum. Mun nú samt reyna að halda ró minni ef það gerist. Það er komin timi til að stjórnvöld hlusti á þessi mótmæli og bregðist við með því að lækka sínar álögur á eldsneyti og það STRAX. Nú ef þau láta sér ekki segjast þá hvet ég trukkafólkið til að halda þessu áfram eins lengi og þarf.

 


0-1

Flott Leedsararnir höfðu það með 0-1 útisigri á  Doncaster í kvöld og náðu að hefna fyrir tapið á Elland Road.  Komnir í sjöunda sæti og eingöngu 1 stigi frá umspilssæti. Áfram svona Leeds United.

Barcelona vann 0-1 á útivelli og Eiður sat á bekknum allan tímann. Annars leist mér ekkert á þetta því Schalke brenndi af fullt af færum í seinni hálfleik. Svo er bara að klára seinni leikinn á Nou Camp. Greinilega gott að spila á útivelli 1 apríl því Man U vann líka Roma 0-2 og seinni leikurinn formsatriði. Get nú ekki sagt að ég fagni því þó.

 

 

 


Höfundur

Ársæll Óskar Steinmóðsson
Ársæll Óskar Steinmóðsson
Knattspyrnudómari, golfari, veiðimaður, fréttasjúkur og læt mér fátt óviðkomandi. Formaður Stuðningsmannaklúbbs Leeds United á Íslandi.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 6
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 6
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband